Það er ágætt að hafa það bak við eyrað að eftir því sem fíflunum fjölgar í kringum mann því meira fífl er maður líklega sjálfur. Ég held að það þurfi einhver að benda Magnúsi frjálslynda á þetta. Nýjasti bloggpistill hans, þar sem hann gerir upp samstarfsslitin á skaganum, er með ólíkindum. Það hafa nánast allir sem störfuðu með honum á Skaganum verið hálfgerðir kjánar sem hann sá aumur á og bjargaði frá einhverskonar ömurlegheitum. Maður bara veltir fyrir sér eftir lesturinn hvar þetta fólk væri statt ef Magnús hefði ekki komið eins og stormsveipur inn í þeirra politíska líf.
Þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti sem Magnús lætur móðinn mása og dritar úr drullubyssunni sinni yfir allt og alla. Þetta sagði Magnús Þór á spjallborðinu malefnin.com í Janúar 2004
“Ekki gleyma því að svína á Hellisheiðina, fara gegnum Þrengslin, lenda svo Spittfærnum á Kaldaðarnesmelum, fljúga svo norður í Eyjafjörð yfir Kjöl, sprengja Stebbafr og Halldór Blöndal til helvítis, snúa svo til baka yfir heiðina og bomba Björn Bjarna og borgarstjórnarminnihlutann hálfa leið til andskotans og lenda svo við gamla flugturninn á Reykjavíkurflugvelli og hrynja í það á kránum í Miðbænum.”
Held að engin stjórmálamaður hafi nokkurtímann látið annað eins frá sér fara. Margrét Sverrisdóttir fékk nú heldur ekki beint vandaðar kveðjur frá Magga mælska.
Forsagan er sú eins og flestir vita að Magnúsi fannst alveg ótæk að taka við 30 flóttamönnum frá Írak. Skipulagið þótti ekki gott. Magnúsi þótti réttara að hjálpa flóttafólkinu heima hjá sér….. humm liggur vandinn ekki einmitt í því að grey fólkið á hvergi heima?
Það er spurning hvert fíflið sé

3 ummæli
Vá, þvílík ritsnilld!
Það eru ekki allir yfirburðamenn eins og þú Magnús
Er ég kannski enn eitt fíflið?
Magnús er að flippa yfir um núna. Nýjasta bloggið hjá honum er í sama stíl. Ég skrifaði komment við bloggið hjá honum í gærkvöldi. En hann birti það ekki. Hann birtir bara núna stuðningsyfirlýsingar. Mér finnst það hvernig Magnús ræðst á fyrrverandi samstarfsfólk sitt lítilmannlegt og ótrúlega óforskammað.
Magnús sýnir sitt rétta andlit þessi dægrin.
Rita ummæli