14. August, 2009 — Óflokkað
Ég er búin að brosa meira í dag en ég geri öllu jöfnu. Að minnsta kosti er ég búin að brosa meira út í annað. Þetta bíó í Borgarahreyfingunni er ekkert annað en grátbroslegt. Ég er búin að fylgjast með stjórnmálum frá því ég var barn. Frá því 2003 hef ég staðið nærri þeim sem vinna við það að vera þingmenn, ekki öllum reyndar en allavegana ég hef séð þetta alþingismanna - politíkusalíf frá aðeins öðru sjónarhorni en margir. Þetta sjónarhorn hef styrkt mig í trúnni. Ég er algjörlega handviss að lang lang flestir þingmenn leggja sig alla fram. Lang lang flestir eru á þingi þvi þeir vilja þjóð sinni vel. Þeir trúa því innilega að það sem þeir eru að gera - það sem þeir vilja koma í framkvæmd sé til heilla fyrir land og þjóð. Ég er líka viss um að þeir hugsi mikið frekar um fólkið heldur einhverskonar vildarvina-eitthvað. Eins ógeðslega ósammála ég er Ögmundi þá er ég viss um að hann vilji mér og öllum hinum afskaplega vel með sínum afturhalds hugmyndum. Ég er líka alveg viss um að Pétur Blöndal vilji mér og mínum löndum jafnvel og Ögmundur með sínum frjálshyggjuhugmyndum. Ég er líka sannfærð um það að það að vera alþingismaður er ekki auðvelt starf. Maður fer ekki í þetta djobb að öllu jöfnu án þess að vera hugsjónarmaður og vilja landi sínu og þjóð vel. Þið megið halda að ég sé naive, kannski er ég það en ég held að ég hafi nokkuð rétt fyrir mér í þessu.
Með þetta í huga fannst mér eiginlega svoldið sérstakt þegar Borgarahreyfingin ruddist fram fyrir síðustu þingkosningar. Þetta fólk kom mér fyrir sjónir sem miklir besservisserar sem höfðu höndlað sannleikann. Þau voru réttsýnari en aðrir stjórnmálamenn, þau voru mikið meira til í að vinna fyrir fólkið í landinu heldur en allir hinir stjórnmálamenninir, þeim fannst flokkar vera hálf heimskulegir og þeirra fyrirkomulag betra. Þetta mátti ekki vera flokkur, varð að vera hreyfing, þingflokkurinn mátti ekki heita flokkur heldur var það þinghópur. Ég var einhvernvegin frá upphafi viss um það þetta myndi allt fara til fjandans hjá þeim. Það vill gjarnan gerast hjá fólki sem telur sig hafa höndlað sannleikann. Ég verð reyndar að viðurkenna að ég bjóst ekki við að það myndi gerast svona fljótt.
Eflaust hafa þau fengið sjokk þegar þau komu inn á þing. Þau hafa komist að því maður mætir ekki og kemur hinu og þessu í gegn á réttsýninni og vinnuseminni einni saman. Þau hafa eflaust lika komist að því að allir hinir þingmennirnir töldu sig jafn réttsýna og voru jafn til í að vinna fyrir land og þjóð og þau. Þetta var kannski ekki eins auðvelt og þau héldu.
Ég eiginlega vorkenni þeim svoldið. Ég hef haldið á minni lífsleið að ég hafi höndlað sannleikann og runnið á rassinn með það. Ég þakka guði fyrir að ég gerði það ekki fyrir framan alþjóð. Það er leiðinlegt að vera aðhlátursefni.
Eitt sem ég skil alls ekki. Afhverju í ósköpunum eru þau að pósta afsökunarbeiðnum, prívat póstum og þannig stöffi á bloggin sín? Er verið að fara alla leið með Nýja Ísland - allt upp á borðin. Á ég kannski að gefa lykilorðið á tölvupóstinn minn upp?
1. August, 2009 — Óflokkað
Nú er búið að setja lögbann á umfjöllun RUV á Kaupþingsgögnunum. Finnur bankastjóri segir að þetta eigi ekki erindi við almenning og er sýslumaður honum sammála. Það er þó ljóst að skuldir gamla Kaupþings koma almenningi við. Ég get ekki betur séð en að ég og þið hin munið þurfa að borga þetta helvítis bull í mörg mörg ár.
Þetta lögbann, þessar fréttir um að sukk innan Kaupþings sem við þurfum að borga eigi ekki erindi við almenning kemur á sama tíma og stór hluti landsmanna liggur yfir tekjublöðum og skoðar hvað náunginn hefur í laun. Ég hef tvisvar sinnum lent í þessum tekjublöðum. Hvorki þá né nú finnst mér tekjur mínar eigi erindi við almenning. Dómstólar eru þó mér ósammála. Dómstólar voru líka ósammála Jónínu Ben þegar henni fannst einkatölvupóstar sínir ekki eiga erindi við almenning. Ég man ekki betur en í þessum tölvupóstum hafi m.a. verið einhverskonar upplýsingar um ástarlif Jónínu og ef ég man rosalega rétt þá var eitthvað fjallað um það í DV. Þetta þótti dómstólum eiga erindi við almenning. En sýsla þykir almenningur ekki eiga heimtingu á því að vita hvernig var stofnað til skulda sem hann á að borga. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? (já já ég skal vera sanngjörn, etv var ekki annað í spilunum fyrir Sýsla)
Ég held að Banka Finnur sé að fremja einhverskonar PR sjálfsmorð. Hann er að stýra ríkisfyrirtæki fyrir okkar hönd. En virðist þó vera í liði með þeim sem kom okkur á hausinn. Mér langar mest að hætta viðskiptum við Kaupþing vegna þessa stórleiks Finns. Ég held þó að ég sé bara fangi Kaupþings. Ég held að engin annar banki sé æstur í það að taka íbúðarlánið mitt yfir. Líka helvíti slæmt að geta ekki tekið yfirdráttinn út og lagt hann inn á annan banka. Þá væri lífið sko auðvelt
Thumbs Up fyrir Evu Joly. Það hefði nú verið óskandi ef Jóhanna eða Steingrímur hefðu haft pung í að skrifa svona grein.
3. July, 2009 — Óflokkað
Nokkrir sprenglærðir peningamenn hafa komið fram á allra síðustu dögum og sagt að við, þ.e. Ísland stefni í gjaldþrot. Sumir ganga jafnvel svo langt að segja að það væri e.t.v. best að við myndum lýsa okkur gjaldþrota sem fyrst.
Kannski er ég alveg græn en ég bara verð að upplýsa um hversu fáfróð ég er. Hvað í ósköpunum gerist ef þjóð verður gjaldþrota? Ég veit hvað gerist ef einstaklingur verður það, amk svona sirka en ég hef ekki hugmynd um hvað gerist þegar þjóð verður gjaldþrota.
Getur einhver hjálpað mér?
1. July, 2009 — Óflokkað
Ég eins og aðrir átti æskudrauma. Ég fór að rifja þessa drauma mína upp þegar þegar Michael vinur minn dó um daginn. Michael er nefnilega samofinn minni barnæsku…. Hann og Hemmi Gunn.
Ég átti mér þann draum að….
…vera kvennkyns útgáfa og Michael Jackson. Ég vildi bara nákvæmlega eins og hann nema að því leiti að ég vildi ekki vera karl. Mikið er ég fegin að þessi draumur rættist ekki.
… að Fram yrði langbesta fótboltalið á Íslandi alltaf. Mikið er ég fegin að þessi draumur rættist ekki.
… að ég yrði sjoppukona þegar ég yrði stór - alltaf. Er hrikalega fegin að þessi draumur rættist ekki, með fullri virðingu fyrir sjoppukonum.
… að ef ég yrði ekki kvennkyns MJ að ég yrði hin nýja Elín Hirst. Mér þótti það svalasta starf á Íslandi að segja fréttir. Held að það sé ágætt að ég sé ekki í því hlutverki. Elín er bara fín í þessu.
… að mér yrði boðið að syngja og dansa í þættinum Á tali hjá Hemma Gunn. Mikið er ég fegin að þessi draumur rættist ekki. Sennilega ekki til margir jafn hæfileikalausir söngvarar og dansarar eins og ég.
1. July, 2009 — Óflokkað
Ég er ung kona. Eiginlega vil ég bara láta kalla mig stelpu. Ég er 29 ára og á því eftir að lifa vonandi í u.þ.b. 55 ár til viðbótar. Ég er að reyna að koma undir mig fótunum í lífinu. Ég skulda fullt í námslán enda var ég að hossast í háskóla í 5 ár. Ég keypti mér líka mína fyrstu íbúð á því herrans ári 2007. Ég skulda sem sagt fullt af peningum. Vegna þessa hef ég nú örlitlar áhyggjur af ástandinu. Það mun sennilega koma verr við mig en marga aðra. Ég er nefnilega á þeim aldri. Ég gerði samt ekkert rangt. Ég tók enga kjánalega ákvörðun í peningamálum. Ég svona velti fyrir því mér hvort þessi Icesave-samningur sem þú vilt endilega negla muni ekki hafa alvarlegar afleiðingar fyrr minn fjárhag, og það sem meira er, fyrir þjóðina mína sem mér þykir svo vænt um. Ég er ekkert handviss um að svo sé en mér svona sýnist það. Mér finnst allt benda til þess að þetta sé algjörlega afleitur samningur sem gamli foringinn þinn, hann Svavar, hefur gert.
Ég man ekki eftir því að mér hafi þótt neitt annað mál sem upp hefur komið á Alþingi skipta mig persónulega jafn miklu máli og þessi samningur. Ég sé í hendi mér að það hvernig þetta mál verður til lykta leitt muni skipta mig ansi miklu máli. Kárahnjúkavirkjun sem þú vildir eflaust að færi í þjóðaratkvæði er einhvers konar djók í samanburði við þetta, eða það finnst mér alla vega.
Ég er svona á því að þjóðaratkvæðagreiðsla sé e.t.v. eitthvað sem mætti a.m.k. skoða í tengslum við þetta Icesave-mál. Þetta er jú gífurlegt hagsmunamál fyrir okkur flest. Ég var því alveg hissa þegar þú komst fram á hinu háa Alþingi og sagðir að ég, og reyndar landar mínir, hefðum kosið um Icesave fyrir tveimur mánuðum. Ég skil ekki alveg hvað þú ert að fara og langar að fá skýringar frá þér.
Ég nýtti atkvæðisrétt minn í síðustu kosningum. Ég verð bara að viðurkenna það að mér var það ekki kunnugt að ég væri að kjósa um Icesave-málið. Var það kynnt eða tók ég svona illa eftir? Ef ég hefði vitað það þá hefði ég kynnt mér Icesave miklu betur. Ef ég hefði kynnt mér Icesave eins vel og ég gat á þessum tíma þá hefði ég líklega komist að þeirri niðurstöðu að ég ætti að kjósa þig og þinn flokk ef ég væri alfarið á móti því að við Íslendingar borguðum Icesave. Mig langar því að spyrja þig kæra Álfheiður, er ég að misskilja málflutning þinn og þinna félaga um Icesave fyrir kosningar eða hefur þú skipt um skoðun? Ef þú hefur skipt um skoðun getur þú þá upplýst mig um af hverju þú gerðir það? Annað sem mér finnst skjóta skökku við er hvernig ég hefði átt að geta kosið um Icesave málið í vor þegar ekki var búið að gera þann samning sem nú liggur fyrir dyrum, hvað þá birta öll þau skjöl sem honum fylgja. Hvernig átti ég að taka afstöðu til einhvers sem var ekki komið fram? Ég bara skil þetta ekki.
Viltu kæra Álfheiður skýra það út fyrir mér hvernig ég kaus um þetta? Þetta skiptir mig nefnilega máli.
Með von um skýr og skilmerkileg svör
Hafrún Kristjánsdóttir
14. April, 2009 — Óflokkað
Ég ákvað að láta 5 mín í heita pottinum duga eftir æfingu í dag. Það gerist ekki oft að ég stoppi svo stutt við í pottinum í klefanum okkar. Ástæðan fyrir stuttu stoppi var oddaleikur KR og Grindavíkur. Ég bara varð að drífa mig upp í sófa og taka til við gláp. Ég var nú ekki búin að horfa lengi þegar ég var farin að öskra á sjónvarpið. Ég var að reyna að koma skilaboðum til leikmannanna. Ég reyndi t.d. nokkum sinnum að öskra á Brenton leikmann Grindavíkur - “taktu frákastið maður” Þulinir, tveir kunningjar mínir þeir Gaupi og Svali öskruðu mun minna á leikmennina inn á vellinum. Sennilega hafa þeir vitað sem var að leikmennirnir myndu lítið heyra í þeim. Þeir áttuð sig hins vegar á því að þeir gátu öskrað á áhorfendur heima í stofu. Þeir öskruðu vilt og galið á mig. Þeir sögðu mér miljón sinnum hvað þetta væri allt magnað. Ég er ekki frá því að ég hafi verið þeim sammála. Oddaleikur í úrslitum er ávalt magnaður…. ég tala nú ekki um þegar hann er eins jafn eins og þessi var.
Mitt í öllum spenningnum datt sjónvarpið út. Stöð2Sport ákvað bara að gefa upp öndina á ögurstundu. Ég hætti því að öskra á leikmenn Grindavíkur og öskraði í stað þess á ábyrga aðila… aðila sem ég vissi ekki alveg hverjir voru. Seint í fjórða leikhluta ákvað Stöð2Sport að leyfa mér að horfa áfram, ég hætti því að öskra út í loftið á ábyrga aðila og fór aftur að öskra á Brenton….. Gaupi og Svali voru enn að öskra á mig… enn voru þeir að segja mér hvað þetta var magnað. Þeir sögðu mér líka að slökkva ekki á sjónvarpinu. Ég var ekki líkleg til þess eftir á það sem undan var gengið.
Ég semsagt missti mig yfir þessum leik. Ég reyndi í alvöru að koma skilaboðum inn á völlinn. Ég missti mig þrátt fyrir að mitt lið Valur væri ekki að keppa. Hins vegar er það þannig að öll lið sem spila á móti KR eru mín lið
Þegar ég hélt að það væri ekki hægt að missa sig á kjánalegri hátt yfir íþróttaleik sem maður er ekki þátttakandi í en ég hafði gert í stofunni kom gullmoli frá Svala Björgvinssyni. Svali sagði mitt í öllum æsingnum: “Þetta er íþróttaviðburður áratugarins” Silfrið hvað?
En til hamingju KR
9. April, 2009 — Óflokkað
Djöfulsins anskotans djöfulsins rugl. Hvað var í gangi í hausnum á þeim sem ákváðu að það væri bara frekar góð hugmynd af taka við 30 miljónum frá FL og 25 frá Landsbankanum?? Var bara almennt einhver heima á milli eyrnanna á þessum mönnum/konum þegar var verið að græja þennan styrk? Þetta gengur ekki, þetta er með öllu óásættanlegt. Habba Kriss hefur enga trú á því að Geir Hilmar beri einn ábyrgð á þessum styrkjum, það væri þægilegra ef svo væri en það meikar bara ekki sens. Fleiri hafa augljóslega komið að málinu. Afsakið á meðan ég æli.
Nú er komið að Bjarna Ben. Nú kemur í ljós hvort að hann sé kerling eða alvöru maður. Það kemur líka væntanlega í ljóst hvort að Þorgerður Katrín sé kerling eða hörku kvendi. Það á að sópa öllum þeim sem komu nálægt þessum styrkjum út úr Valhöll. Það gengur ekki að flokkurinn í heild, þingmenn sem ekkert vissu um þennan ósóma og hefðu í öllum tilfellum þótt þetta ógeðfelt þurfi að svara fyrir svona helvítis bull. Það getur vel verið að ágætis fólk hafi komið að þessu máli. Mér er bara sama. Ég er ágætis manneskja en ef ég fer yfir ákveðin siðferðismörk í mínu starfi þá þarf ég að borga fyrir það með starfsleyfi mínu. Sömu eða samskonar reglur verða bara að gilda fyrir stjórnmálamenn einnig.
Habba Kriss er fjúríus en Höbbu Kriss langar að sama skapi að vita hvað aðrir flokkar voru að fá í styrki frá stórfyrirtækjum.
____________________
Nú fram að kjördegi ætla ég að reyna að blogga aðeins um skoðanakannanir. Þær eru nánast í öllum tilfellum túlkaðar rangt af fréttamönnum. Það er gjörsamlega óþolandi, sérstaklega í ljósi þess að það eru nú ekki flóknir útreikningar sem þarf að leggjast í til þess að átta sig á hvað kannanir segja…. og segja ekki.
Það sem hingað til hefur komið út úr þessum könnunum er það að ekki er hægt að segja hvaða flokkur er með mesta fylgið. XD, XS og VG koma til greina. Ljóst er þó að þessir flokkar eru stærri en XB.
28. March, 2009 — Óflokkað
Ég held að það hljóti að vera ljóst eftir þessa þrumuræðu Davíðs á landsfundinum að engin stjórmálamaður a.m.k á séns í ræðumanninn Davíð. Aðrir verða bara kjánalegir í samanburðinum. Menn geta vissulega verið sammála eða ósammála innihaldinu en sem ræðumaður er Davíð mikill snillingur.
Þetta t.d. finnst mér hrikalega fyndið, mer líkar kaldhæðni.
Útrúasarvíkingarnir sem settu Ísland á hliðina áttu eina sameiginlega ósk og hún var að koma Davíð Oddssyni úr Seðlabankanum. Þessa ósk flýtti vinstri stjórnin sér í að uppfylla, væntanlega í þakklætisskyni við víkingana fyrir vel unnin störf í þjóðarþágu.”
„Og fyrst þetta forgangsmál ríkisstjórnarinnar og útrásarvíkinganna var farsællega í höfn notaði hún síðustu daga til þess að ræða um nektarsýningar á skemmtistöðum. Auðvitað á ég að vera þakklátur fyrir að ríkisstjórnin hafi ekki sameinað þessi tvö mikilvægu mál sín. Því þá gætu þeir falið mér, þar sem ég er án vinnu, að sjá framvegis um þær nektarsýningar sem fram þurfa að fara á Íslandi.”
Ég er eftir að hlusta almennilega á ræðuna til að geta tjáð mig efnislega um hana. Hvar er hægt að nálgast hana í replay?
17. March, 2009 — Óflokkað
Nú er bann við nektardansi að detta inn. Þetta verður allt annað líf fyrir heimilin í landinu þegar stúlkunar hætta að sveifla sér á súlunni. Ég held að allir geti verið sammála um að bann við nektardansi er algjört forgangsatriði í þessu árferði.
Ég er búin að vera velta svoldið fyrir mér hvernig lögin verða nákvæmlega. Má dansa á nærunum eða er nauðsynlegt að vera í nærum og brjóstarhaldara? Þurfa dansmeyjar e.t.v. að vera í sokkum til þess að vera alveg vissar um að verða ekki handteknar? Hvað með gegnsæja næfurþunna kjóla? Eða snýst þetta um að það megi ekki rukka inn á skemmtistaði þar sem danssýning fer fram? Nei það getur nú varla verið. Má ég halda partý, bjóða 200 manns og fá konu (eða karl) til að rífa sig úr í takt við tónlist og greiða henni fyrir? Hvað með að fá konu (eða karl) til að rífa sig úr í partýinu og hvetja gesti til að lauma frjálsum framlögum í strenginn?
Eftir töluverðar pælingar hef ég komist að niðurstöðu. Ég held að þetta hljóti bara að snúast um haldarann. Vaxtarræktarkonur dansa um sviðið í vaxtarræktarkeppnum á mjög svo efnislitlum nærum og höldurum. Það kostar inn á slíkar keppnir og keppendur gætu mögulega verið að fá verðlaunafé. Ég er ekki frá því heldur að stundum dilli keppendur í Ungfrú Ísland sér örlítið með tónlistinni þegar þær svífa inn á sviðið í háum hælum og blúndunærfötum. Það kostar inn á Ungfrú Ísland og þær fá rándýra hluti í verðlaun. Goldfinger Geiri getur bara haldið keppnina um Ungfrú Kópavog oft og mörgum sinnum. Geiri verður bara að passa að þær séu í höldurunum stúlkunar. Svo velja þær bara efnið í haldarana sína sjálfar.
__________
Kannski er ég að snúa út úr, kannski er ég full kaldhæðin. Það er bara ekki annað hægt.
10. March, 2009 — Óflokkað
Þegar ég útskrifaðist sem sálfræðingur ákvað ég að það væri skynsamt að skella mér á séreignalífeyrissparnað. Bankamenn voru búnir að hringja í mig endalaust. Samkvæmt þeim væri ég á leið til Bali með tær upp í loft ef ég myndi skrá mig í þeirra sjóð. Ég lét til leiðast enda er hugmyndin í grunninn mjög góð. Ég legg til hliðar og vinnuveitandinn minn (ríkið) hjálpar mér að leggja til hliðar. Ég talaði við einhvern ráðgjafa. Hann ráðlagði mér að fara einhverja leið sem væri alveg solid. Allir sem væru á mínum aldri færu þessa leið. Ég ætti svo ekki að hafa áhyggjur af neinu. Bara að fara að hugsa til þess að vera 65 ára á Bali. Auðvitað treysti ég ráðgjafanum. Hann með próf upp á að kunna á peninga en ég vissi bara eitthvað um þunglyndi og kvíða.
Nú er búið að samþykkja á alþingi að maður megi taka út séreignina sína. Ég fór því og kíkti á yfirlitið. Ég hef samtals borgað 562 þúsund í séreign, ríkið hefur lagt til 308 þúsund. Samtals 870 þúsund. Innistaðan mín er 521 þúsund as we speek!!!! Allur peningurinn sem ríkið lagið til er horfin plús einhver 40 þúsund kall. Bankinn tekur enga ábyrgð á einu né neinu. Áhættan er öll mín megin. Ég setti peninga inn í bankann og tapaði vegna hrunsins
Fyrir einu og hálfu ári síðan þá tók íbúðarlán uppá fullt af miljónum. Þetta er verðtryggt lán í íslenskum krónum. Við fórum í greiðslumat og það allt. Allt í góðu. Nú hefur þetta lán hækkað alveg fáranlega mikið. Ég tók semsagt peninga út úr bankanum og tapaði lika á því… aftur vegna hrunsins. Áhættan er öll mín megin. Það skiptir engu máli hvort maður leggur inn eða tekur út - maður tapar en bankinn ekki.
Það sjá það allir að þetta er bara rugl. Það er eitthvað voðalega brenglað í kerfinu okkar.
2+2 eru ekki fjórir þegar kemur að bankaviðskiptum.
p.s. ég vil taka það fram að ég er ekki reið út í þá sem ég kalla “bankamenn” hér að ofan. Hef í 99% tilfella fengið afskaplega góða þjónustu frá starfsfólki bankanna. Fólkið á gólfinu hefur afskaplega lítið með þetta að gera. Það er kerfið sem er eitthvað klikkað.